Ballett

Ballettkennsla hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar hefur verið frá upphafi skólans og hafa margir nemendur frá okkur haldið áfram í framhaldsnám í dansi bæði hérlendis og erlendis.

Við leggjum mikla áherslu á góða tæknigetu og líkamsburð, gott tóneyra og tjáningu.

Nemendur 6 ára og eldri geta bætt við sig auka valtímum til að auka tæknigetu, styrk og sviðsframkomu.

Við bjóðum alla nýnema hjartanlega velkomna en biðjum þá um að hafa samband við skrifstofu skólans upp á hvaða hóp þau fara í.

Allir kennarar eru menntaðir í dansi og eru með mikla reynslu. 

Önnin endar á glæsilegri sýningu.

Haustönn 2024 hefst 26. ágúst

Hópar skólaárið 2024 – 2025

B – hópar (6-8 ára)

Nemendur í B hóp læra grunnsporin í ballett, rétta líkamsstöðu og efla styrk ásamt því að  læra grunninn í snúningum og hoppum. Einnig er lögð áhersla á að þau öðlist grunnfærni í hreyfingum um rýmið og séu meðvituð um rýmið og áttir ásamt því að læra mismuandi dansa og spuna æfingar.

B hópur æfir einu sinni í viku en að auki geta nemendur bætt við sig valtímum sem veitir þeim tækifæri til að öðlast betri og fjölhæfari þjálfun eftir áhugasviðið sínu. 

Skólaárið 2024-2025 eru nemendur í B-hópum fæddir árið 2016-2018

C – hópur (9-11 ára)

Nemendur í C hóp vinna áfram að ná grunntækninni ásamt því að unnið er áfram með að ná réttri líkamsstöðu og byggja upp styrk. Nemendur byrja að læra flóknari útgáfur af snúningum og hoppum ásamt fjölbreyttari danssporum.

C hópur æfir tvisvar sinnum í viku en að auki geta nemendur bætt við sig valtímum að vild sem veitir þeim tækifæri til að öðlast betri og fjölhæfari þjálfun eftir áhugasviðið sínu. 

Skólaárið 2024-2025 eru nemendur í C-hópum fæddir árið 2013-2015

DE – hópur (12 ára og eldri)

Nemendur í DE hóp vinna áfram með gunntækni í ballett ásamt því að meiri áhersla er lögð á styrkaræfingar til að geta náð fjölbreyttari danssporum. Hér fara nemendur í flóknari og erfiðari samsetningar á æfingum, hoppum, snúningum og dansrútínum. 

DE hópur æfir tvisvar sinnum í viku í 1.5 klst í senn en að auki geta nemendur bætt við sig auka valtímum að vild sem veitir þeim tækifæri til að öðlast betri og fjölhæfari þjálfun eftir áhugasviðið sínu. 

Skólaárið 2024-2025 eru nemendur í DE-hópum fæddir árið 2012 og eldri

Helstu upplýsingar

Um hópaskiptinguna

Skipt er í hópa eftir aldri og reynslu.

Vinsamlega athugði að hvert skólaár er frá ágúst – maí.

Við bjóðum þá einnig alla nýnema hjartanlega velkomna en biðjum þá um að hafa samband við skrifstofu skólans upp á hvaða hóp þau fara í.

Valtímar

Við viljum veita nemendum okkar tækifæri til að öðlast betri og fjölhæfari þjálfun og erum því með fjölbreytta valtíma í boði sem hægt er að skrá sig í aukalega.

Valtímar:

  • Söngleikjadans (fyrir 6 ára og eldri)
  • Nútímadans (fyrir 9 ára og eldri)
  • Commercial (fyrir 9 ára og eldri)
  • Ballettval (fyrir 12 ára og eldri)
  • Tækni/styrkur/liðleiki (fyrir 12 ára og eldri)
  • Táskóval (fyrir 12 ára og eldri)

Fatnaður í ballett

    Nemendur eiga að mæta í

    • Ballettbol
    • Ballettsokkabuxum (bleikum, hvítum eða húðlituðum)
    • Ballettskóm (bleikum, hvítum eða húðlituðum)
    • Sítt hárið greitt í ballettsnúð, stutt hár greitt snyrtilega frá andliti

      Hægt er að versla viðeigandi æfingarfatnað hjá skólanum.

      Valtímar í boði

      Valtímar eru kenndir einu sinni í viku. Tímarnir hefjast í vikunni 2. – 6. september

      Vinsamlega athugið að í sumir valtíma er gerð krafa um fyrri dansreynslu og að nemendur séu skráðir í grunndeild.

      Ekki taka allir valtímar þátt í jóla- og vorsýningum skólans.

      Sérstakt verð er í boði fyrir nemendur skráða í grunndeild og því ekki fjölgreinaafsláttur í boði.

      Commercial fyrir 9 ára og eldri

      Commercial dans er gríðarlega vinsæll dansstíll en hann má sjá t.d. í tónlistarmyndböndum, tónleikum, kvikmyndum, auglýsingum o.fl. 

      Tímarnir byggjast á því að nemendur læri skemmtilegar og krefjandi kóreógrafíur við ný sem og gömul popplög þar sem áherslan er á dýnamík í hreyfingum og framkomu.

      Hópurinn mun taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • C- hópur fyrir 9-11 ára
      • D-hópur fyrir 12-14 ára
      • E-hópur fyrir 15+

       Nútímadans fyrir 9 ára og eldri

      Nútímadans er dansstíll sem ögrar skipulagðri danstæki hins klassíska ballets. Í nútímadansi er lögð áhersla á tjáningu og frelsi. Nemendur fæddir 2013 geta byrjað að æfa nútímadans. 

      Í þessum tímum lærir þú undirstöður, tækni og grunnatriði í nútímadansi ásamt því að áhersla er lögð á flæði, snerpu, spuna og tjáningu í dansi. Dæmi um nútímadans má sjá hjá hinum ýmsu dansflokkum um heiminn m.a. hjá Íslenska dansflokknum

      Hópurinn mun taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • C- hópur fyrir 9-11 ára
      • D-hópur fyrir 12-14 ára
      • E-hópur fyrir 15+

      Söngleikjadans fyrir 6 ára og eldri

      Frábært val fyrir þá sem vilja efla sviðsframkomu og læra skemmtilega söngleikjadansa.

      Hér er lögð áhersla á sviðsframkomu, túlkun, líkamsbeitingu og sjálfsöryggi. Kenndir eru dansar við lög úr söngleikjum, dæmi um söngleikjadans er til dæmis dansar við lög úr söngleikjunum Mamma Mia, Lion King, Mary Poppins, Frozen og margt fleira.

      Hópurinn mun taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • B-hópur fyrir 6-8 ára
      • C- hópur fyrir 9-11 ára
      • DE-hópur fyrir 12 ára og eldri (ath æfa einu sinni í viku tvær klst í senn)

      Ekki er gerð krafa um fyrri dansreynslu né að nemendur séu skráðir í grunndeild. 

      Ballettval fyrir 12 ára og eldri

      Ballett val er einunis í boði fyrir nemendur skráða í jazz eða ballett hópa skólans. Valið er frábært fyrir áhugasama nemendur í ballett deild skólans sem að vilja bæta við sig ballett tíma ásamt þeim jazz nemendum sem hafa áhuga á að æfa ballett einu sinni í viku. 

      Klassískur ballett er nauðsynlegur fyrir alla sem vilja ná góðri undirstöðu í nánast öllum dansstílum.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • DE hópur 12 ára og eldri



      Tækni, styrkur og liðleiki fyrir 12 ára og eldri

      Tækni tímar eru frábær viðbót fyrir nemendur í bæði jazz og ballett námi, skylda er að vera skráður í annað hvort jazz eða ballett hóp til að fá aðgang að skráningu í tæknival.

      Í tímunum er lögð áhersla á að dýpka þekkingu nemenda á tækni enn frekar ásamt því að gera styrktar og teygjuæfingar. Frábær og mikilvægt viðbót fyrir metnaðarfullar dansnemendur sem vilja ná langt.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • DE hópur 12 ára og eldri

      Táskóval fyrir 12 ára og eldri

      Táskóval er einungis í boði fyrir nemendur í DE ballett deild skólans. Kennt er táskó tækni og rútínur.

      Skipting í hópa er eftirfarandi

      • DE hópur 12 ára og eldri