Forskólinn 

Forskóli Listdansskóla Hafnarfjarðar veitir nemendum sínum frábæran undirbúning fyrir áframhaldandi dansnám. Okkar markmið er að nemendur þroskist félagslega í gegnum hópavinnu, læri að tileinka sér góða líkamsvitund og upplifi fjölbreytta tónlist víðsvegar að úr heiminum.

Börnin kynnast dansinum í gegnum sköpun og leik. Aðaláherslan er á dansgleði og að styrkja líkamslæsi, samhæfingu líkamshluta, hreyfigreind, félagsfærni og sjálfstraust.  

Allir kennarar eru menntaðir í dansi og eru með mikla reynslu. 

Önnin endar á glæsilegri sýningu.

Haustönn 2024 hefst 31. ágúst

Hópar skólaárið 2024 – 2025

Fyrir 2-3 ára

Skemmtilegir tímar þar sem taktvísi, samhæfing og sköpunargleði er virkjuð í gegnum dans og leiki. 

  • Kennt einu sinni í viku í 10 vikur
  • Hefst laugardaginn 7. september

Foreldrar taka þátt í tímanum. Frábært tækifæri fyrir börn og foreldra að eiga gæðastund saman í gegnum leik og hreyfingu.

A – hópar (4 og 5 ára)

Dansárið 2024-2025 eru nemendur í A-hópum fæddir 2020 – 2019

  • Hópur A4 æfir einu sinni í viku á laugardögum
  • Hópur A3 æfir einu sinni í viku á miðvikudögum
  • Hópur A2 æfir einu sinni í viku á laugardögum
  • Hópur A1 æfir einu sinni í viku á miðvikudögum

Forskóli Listdansskóla Hafnarfjarðar veitir nemendum sínum frábæran undirbúning fyrir áframhaldandi dansnám. Okkar markmið er að nemendur þroskist félagslega í gegnum hópavinnu, læri að tileinka sér góða líkamsvitund og upplifi fjölbreytta tónlist víðsvegar að úr heiminum.

Helstu upplýsingar

Hópaskipting

Skipt er í hópa eftir aldri og fara nemendur upp um hóp á hverju skólaári.

Vinsamlega athugði að hvert skólaár er frá ágúst – maí.

Um kennsluna

    Nemendur forskóla Listdansskóla Hafnarfjarðar læra grunnspor í ballett og jazzdansi.

    Áhersla er lögð á að skapa eigin hreyfingar með og án fyrirmæla ásamt því að nýta tónlist við túlkun hreyfinga, skynja púls og hrynjanda tónlistar og vinna með öðrum í gegnum hópdansa.

    Fatnaður í forskólanum

      Nemendur eiga að mæta í þægilegum fötum sem að hindra ekki hreyfingar þeirra í tíma.

      Fyrir sýningar þurfa nemendur að eiga ballettsokkabuxur og ljósa ballettskó/tátilju.

      Hægt er að versla viðeigandi æfingarfatnað hjá skólanum.